Álnabær er eitt af stærstu fyrirtækjum sinnar tegundar á Íslandi, það var stofnað 1975 og er í eigu hjónanna Guðrúnar H. Kristinsdóttur , Magna Sigurhanssonar og fjölskyldu.
Upphaflega keyptu Guðrún og Magni lítið fyrirtæki sem staðsett var í Keflavík. 1. janúar 1976 hófu þau rekstur að Tungötu 12, Keflavík. Síðan þá hefur fyrirtækið stækkað til muna og í dag eru 35 starfsmenn hjá Álnabæ og útibúum þess.
Á þessum tíma hefur Álnabær keypt tvö fyrirtæki og sameinað þau rekstri sínum. Skilaði þetta sér í umtalsverðri stækkun á húsnæði og aðstöðu, sem í dag samanstendur af 3 verslunum í Keflavík , Reykjavík og Akureyri. Einnig rekur Álnabær sína eigin saumastofu og að Vagnhöfða 13 er framleiðsludeildin . Fyrirtækið hefur 18 umboðsmenn víðs vegar um landið. Allt það húsnæði sem nýtt er til starfseminar er í eigu fjölskyldunnar.
Álnabær hefur aðallega verið með innflutning, sölu og framleiðslu á gluggatjöldum og fylgihlutum svo sem stöngum, köppum, rúllu, rimla og strimlagluggatjöldurm. Auk þess býður fyrirtækið upp á þjónustu og aðstoð í vali, mælingum og uppsetningum.
Fyrirtækið er í auknu mæli að leggja áherslu á þjónustu við hótel og gistiheimi með framleiðslu á vatteruðum rúmteppum og myrkrunargluggatjöldum.
Velgegni Álnabæjar er sönnun blómlegra viðskipta sem eigendur þakka ekki síst sérhæfðu og duglegu starfsfólki.